NETNÁMSKEIÐ
Gervigreindarlæsi í námi og kennslu
Netnámskeið í sex hlutum sem veitir hagnýta kynningu á gervigreindarlæsi og hlutverki gervigreindar í námi og kennslu.

Áður en þú byrjar
Netnámskeiðið er fyrsti hluti þátttöku þinnar í rannsóknarverkefninu Framtíð menntunar. Námskeiðið samanstendur af sex stuttum myndböndum sem fjalla um gervigreindarlæsi og notkun gervigreindar í skólastarfi.
Við hvert myndband er einnig aukaefni fyrir þau sem vilja kafa dýpra. Að loknu netnámskeiðinu verður þér boðið að taka þátt í rannsókninni með því að svara spurningum um efnið.
Gert er ráð fyrir að námskeiðið taki um tvær klukkustundir í heild. Þú getur farið í gegnum það á þínum eigin hraða og tekið hlé á milli kafla þegar þér hentar.
Fyrirlesari
Tryggvi Brian Thayer flytur myndbönd netnámskeiðsins og leiðir þátttakendur í gegnum helstu viðfangsefni gervigreindarlæsis og notkunar gervigreindar í skólastarfi.
Veldu kafla
Veldu þann kafla sem þú vilt hefja eða halda áfram í. Smelltu á titil til að opna viðkomandi myndband.
