Getur þú greint ofskynjanir spunagreindar?

Google leitarvélin var sett í gervigreindarham (e. AI mode) og spurð eftirfarandi:

Hver samdi og flutti lagið Út í myrkrið sem kom út árið 1987?

Svarið sem var gefið var þetta:

Lagið „Út í myrkrið“ sem kom út árið 1987 var samið og flutt af hljómsveitinni Bleiku bastarnir.

Lagið var fyrsta opnunarlagið á samnefndri sex laga stuttskífu (EP plötu) sveitarinnar sem Smekkleysa gaf út seint á árinu 1987. Hljómsveitina skipuðu þeir Björn „Basti“ Jónsson (söngur), Ívar Árnason (gítar), Tryggvi Hübner (gítar), Páll Thayer (bassi) og Magnús Þorsteinsson (trommur). Tónlist þeirra á þessum tíma þótti kraftmikil blanda af pönki, sýrurokki og rokkabillí.

Ef þú hefur áhuga get ég aðstoðað þig við að finna:

  • Lagalistann í heild sinni af þessari tilteknu plötu.
  • Nánari upplýsingar um sögu hljómsveitarinnar Bleiku bastarnir.
  • Aðrar helstu útgáfur Smekkleysu frá þessum sama tíma.

Sjáið þið eitthvað athugavert í þessu svari? Er eitthvað sem vekur ykkur til umhugsunar og hvetur ykkur til að staðfesta þær upplýsingar sem eru gefnar upp? Eru einhverjar augljósar rangfærslur sem blasa við?

Sýna skýringu…

Rangfærslur (ofskynjanir) í svarinu:

  1. Orðalagið gefur til kynna að plata Bleiku bastana hafi heitið „Út í myrkrið“. Platan hét einfaldlega „Bleiku bastarnir“.
  2. Söngvari hljómsveitarinnar var Björn Baldvinsson (ekki Jónsson), oft kallaður „Bjössi Basti“ (ekki bara „Basti“).
  3. Annar gítarleikari hljómsveitarinnar var Tryggvi Thayer. Tryggvi Hübner kom aldrei að Bleiku böstunum með neinum hætti.

Hér sjáum við skýrt dæmi um það hvernig spunagreind getur sett fram svar af miklu sjálfsöryggi, sem þó inniheldur rangfærslur. Ekkert í framsetningu svarsins gefur til kynna að spunagreindin sé í nokkrum vafa um einstök atriði. Hér er það alfarið upp á notandann komið að sannreyna svarið annaðhvort með frekari eftirgrennslan eða eigin þekkingu. Þetta undirstrikar mikilvægi þess að notendur kynni sér vel efnið sem á að vinna með í samstarfi við spunagreind. Það er aðeins eigin þekking notenda spunagreindar sem tryggir að farið er rétt með staðreyndir.

Prófið sjálf að spyrja spunagreind út í efni sem þið teljið ykkur hafa góða þekkingu á. Þið getið spurt um vel afmarkað viðfangsefni sem tengist ykkur sérstaklega, áhugamál sem þið hafið kynnt ykkur vel eða annað sem þið búið yfir djúpri þekkingu á. Spjallið aðeins við spunagreindina um efnið og sjáið hvort hún komi með eitthvað sem ykkur þykir vafasamt.